|
Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja |
|
16.01.2012 20:37Framboð í stjórn 2012
Skrifað af Stjórn 05.01.2012 14:43Aðalfundur 30. jan 2012Aðalfundur 30. janúar 2012
Ágætu félagar, um leið og við óskum ykkur gleðilegs árs viljum við minna á aðalfundinn sem haldinn verður að þessu sinni mánudaginn 30. janúar næstkomandi, fundurinn hefst kl. 20:00 og verður haldinn upp í Arnarhreiðri. Einn af dagskrárliðum er kosning stjórnar, það sem kjósa þarf um á þessum fundi er eftirfarandi: Formann, gjaldkera, meðstjórnanda og einn varamann til tveggja ára, varaformann, meðstjórnanda og varamann til eins árs, þá þarf einnig að kjósa tvo endurskoðendur og einn til vara. Þeir sem ætla að gefa kost á sér til setu í stjórninni þurfa að senda framboðstilkynningu til varaformanns klúbbssins, Þórhalls Jóhannssonar, Sunnubraut 14 , 250, Garði, sunnubraut14@simnet.is eigi síðar en 15. janúar 2012, framboðslisti verður síðan birtur á heimasíðu klúbbsins daginn eftir að frestur rennur út.
12.gr. Stjórnarkjör. Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr. 10 gr. Um aðalfund. Haldinn skal aðalfundur fyrir lok janúar ár hvert. Skal þar taka til venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum klúbbsins. Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tuttugu daga fyrirvara og skal hann boðaður með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins. Með fundarboði skulu fylgja tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru. Eintak af endurskoðuðum ársreikingum skal liggja fyrir á aðalfundi
Með hjólakveðju Stjórnin. Skrifað af stjórn |
Vafraðu umErnir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja Nafn: Formaður Pálmi HannessonTölvupóstfang: stjorn(hjá)ernir.comAfmælisdagur: 27-04-2001Um: Félagsfundir kl 20. annan hvern fimmtudagBankanúmer: 0121-05-441234Eldra efni |
Afmælishátíð Arna 14 maí 2011