Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Nafn:

Formaður Pálmi Hannesson

Afmælisdagur:

27-04-2001

Um:

Félagsfundir kl 20. annan hvern fimmtudag

Kennitala:

551105-2610

Bankanúmer:

0121-05-441234

Staðsetning



Arnarhreiðursins ...

Opið hús
alla
fimmtudaga, kl.20:00


Forvarnardagurinn

eftir

3 daga

Tenglar

Færslur: 2012 Janúar

05.01.2012 14:43

Aðalfundur 30. jan 2012

 Aðalfundur 30. janúar 2012

 

Ágætu félagar, um leið og við óskum ykkur gleðilegs árs viljum við minna á aðalfundinn   sem haldinn verður að þessu sinni mánudaginn 30. janúar næstkomandi, fundurinn hefst kl. 20:00  og verður haldinn upp í Arnarhreiðri.

Einn af dagskrárliðum er kosning stjórnar, það sem kjósa þarf um á þessum fundi er eftirfarandi: Formann, gjaldkera, meðstjórnanda og einn varamann til tveggja ára, varaformann, meðstjórnanda og varamann til eins árs, þá þarf einnig að kjósa tvo endurskoðendur og einn til vara.

Þeir sem ætla að gefa kost á sér til setu í stjórninni þurfa að senda framboðstilkynningu til varaformanns klúbbssins, Þórhalls Jóhannssonar, Sunnubraut 14 , 250, Garði, sunnubraut14@simnet.is  eigi síðar en 15. janúar 2012, framboðslisti verður síðan birtur á heimasíðu klúbbsins daginn eftir að frestur rennur út.

12.gr. Stjórnarkjör.
Í Stjórn félagsins skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Rétt til stjórnarsetu hafa þeir sem hafa verið fullgildir félagar í klúbbnum í tvö ár.  Tilkynna þarf framboð til stjórnar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15 janúar, framboðslista skal birta á heimasíðu klúbbsins 16 janúar.  Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjónendum og tveimur varamönnum.  Hver stjónarmeðlimur skal kosinn til tveggja ára.  Formaður, gjaldkeri, meðstjórnandi og einn varamaður skulu kosnir annað árið.  Varaformaður, meðstjórnandi og varamaður eru kosnir hitt árið.  Formaður má ekki sitja fleiri en tvö kjörtímabil í röð.  Kosningu hljóta þeir sem flest atkvæði fá.  Að auki skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.

Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.

10 gr. Um aðalfund.

Haldinn skal aðalfundur fyrir lok janúar ár hvert. Skal þar taka til venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum klúbbsins. Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tuttugu daga fyrirvara og skal hann boðaður með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins. Með fundarboði skulu fylgja tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru. Eintak af endurskoðuðum ársreikingum skal liggja fyrir á aðalfundi



11.gr. Aðalfundur.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar: Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar og fjölskyldumeðlimir sem náð hafa 17 ára aldri enda greiði þeir fullt félagsgjald eftir að 17. ára aldri er náð, enda teljast þeir fullgildir félagar. Engin getur kosið í umboði annars félaga. Á aðalfundi skulu
tekin fyrir þessi mál:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs
3. Stjórn leggur fram reikninga liðins árs
4. Lagabreytingar samkvæmt 13.gr. laga félagsins.
5. Kosning stjórnar og skoðunarmanna samkvæmt 12.gr laga félagsins
6. Kosning nefnda samkvæmt 14.gr. laga félagsins.
7. Önnur mál

Með hjólakveðju

Stjórnin.

www.123.is/ernir

  • 1
Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 79
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 362457
Samtals gestir: 83674
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 19:08:40